Skálmöld "Kvaðning" lyrics

Translation to:defrnltr

Kvaðning

Ligg ég eftir langa drauma,liggur stirður, hugur sljór.hatrið finn ég kröftugt krauma,kreistir hefnd ef fyrrum sór.Heiðin býr að hættum blindum,horfi ég mót svörtum tindum,Hel býr þar í mörgum myndum:myrkur, kuldi ís og snjór.

Heljarsál af himnum steyptist,hafði af mér bú og menn.Hatrið inn í hugann greyptist,heldur mér á lífi enn.Fleyjum þínum feigðin grandi,finn ég þig á sjó og landi.Kem ég til þín forni fjandi,fundir okkar nálgast senn.

Morgunsól á miðri heiði,minningarnar sækja á.Mikil er og römm sú reiði,rífur sárin hatrið þá.Eitt sinn átti fljóð að finnasem fallig gætti barna minna,en núna hef ég verk að vinna:vega blóðga, stinga' og flá.

Höldum nú á feigðarinnar fund,þetta ferðalag mun telja okkar daga.Vaskir menn á vígamóðri stundog Valhöll bíður okkar.Höldum nú á feigðarinnar fund,þetta ferðalag er köllun vor og saga.Vaskir menn á vígamóðri stundog Valhöll bíður okkar allra þá.

Here one can find the lyrics of the song Kvaðning by Skálmöld. Or Kvaðning poem lyrics. Skálmöld Kvaðning text. Also can be known by title Kvaoning (Skalmold) text.