Skálmöld "Með drekum" lyrics

Með drekum

Hátt á vængjum vættur,veru fylgja herir.Yfir horfir hafið,hendast nærri fjendur.Skríða yfir Skrúðinnskrælingjar í brælu.Ljótir á oss leita.Landið er í vanda.

Barðist fólk á fjöru,fór á höfðann Þórunn.Bogi gat ei geigað,grenja undan frenjur.Gjalda ógn með eldi,yfir allt sem lifir.Hetjur böls og haturshrekjast undan dreka.

Um fór, ógnandi stór.Álengdar stóðu þá Bragi og Þór.Hart skal mæta hörðu.Blés þá brandinum sá.Brunnu þar allir við Sandvíkurá.Jöfnum þá við jörðu.Jöfnum þá við jörðu.

Eldraun Auðna þessa þreytti,Þórunn með sitt sverð og skjöld.Nóttin til hins betra breytti,blóðgaði hún drýslafjöld.

Misstum bæði vár og vini,var það blóðrauð sumarnótt.Rétt í tungls- og röðulsskiniráðast kvæði drótt.

Bliksvart blóð,brennheit glóð.Stelpan stóð,stjörf og hljóð.

Þeir komu á skipum, þeir komu úr lofti,í kraumandi veðri og sjó.Þúsundum saman með þrumandi öskriog þefjan sem vit okkar sló.Vopnlausir flestallir, vargar og skepnur,sem vilja með kjafti og klómrífa þig sundur og ráðast á næstameð rauðhlaupin augun og tóm.

Blésu þeir eldi á bátana okkar,við börðumst á móti með heift.Verk þeirra manna sem ganga á glapstigumgátum við alls ekki leyft.Dýrkeyptur sigur en drekar og menn sýnduduginn sem skilaði þeimréttinum að geta ráfað að heimanog ratað á nýjan leik heim.

Here one can find the lyrics of the song Með drekum by Skálmöld. Or Með drekum poem lyrics. Skálmöld Með drekum text. Also can be known by title Meo drekum (Skalmold) text.