Skálmöld "Niðavellir" Слова песни

Перевод на:csdeentr

Niðavellir

Niðavellir, náhvítur máninn skín.Dvergahellir, dulúð þér villir sýn.Sindradætur, synir og börnin öll,vetrarnætur, verma þau klettafjöll.

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa.Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa.Hér er gott að sofa.

Galdrastafir, grafnir í stóran stein,dvergagrafir, dysjar og gömul bein.Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal.Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal.

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa.Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa.Hér er gott að sofa.

Trónir á mergi tinnugler,tindar úr bergi háir.Sindri og Hergill halla sér,hér sofa dvergar gráir.

Heyr, mín kæra hefðarfrú,hér er gott að sofa. (hér er gott að sofa)Á sig taka náðir nú,niðahjón og börnin þrjú.

Þegar heyrist þrumugnýr,Þór við skulum lofa.Okkur geymir hellir hlýr,hér er gott að sofa. (hér er gott að sofa)

Náinn syngur næturljóð,núna sefur dvergaþjóð.

Здесь можно найти слова песни Niðavellir Skálmöld. Или текст стиха Niðavellir. Skálmöld Niðavellir текст. Также может быть известно под названием Nioavellir (Skalmold) текст.