Dimma
Dragðu yfir dimma nóttOg dökka feldinn þinn.Dragðu yfir dimma nótt,Við dveljum enn um sinn.
Það kemur allt í ljós,Það kemur liðlangan dag.Það kemur undir rósAnnað sólarlag.Þegar dagur dvín eru örlögin mín ofin inn í þín.
Dragðu yfir dimma nóttOg dökka feldinn þinn.Dragðu yfir dimma nótt,Við dveljum enn um sinn.
Hún hverfur út á haf,Hún hverfur burt eins og ský.Hún hverfur djúpt í kaf,Niðadökk og hlý.Þegar dagur dvín verða örlögin mín ofin inn í þín.
Enginn veit -Við látum myrkrið svar umlykja allt.Enginn veit -Þó verði aftur bjart þú vita skaltAlltaf kemur önnur nótt.
Það verður engu breytt.Það verður lítið um svörEf orðum yfirleittVerður ýtt úr vör.Þegar dagur dvín verða örlögin mín ofin inn í þín.
Dragðu yfir dimma nóttOg dökka feldinn þinn.Dragðu yfir dimma nótt,Við dveljum enn um sinn.