Kvöldsigling
Bátur líður út um eyjasund,enn er vor um haf og land.Syngur blærinn einn um aftanstund,aldan niðar blítt við sand.Ævintýrin eigum ég og þú,ólgar blóð og vaknar þrá.Fuglar hátt á syllum byggja bú,bjartar nætur vaka allir þá.
Hvað er betra en vera ungur og ör,eiga vonir og æskufjör,geta sungið, lifað leikið sér,létt í spori hvar sem erog við öldunið um aftanstundeiga leyndarmál og ástarfund.