Sálin hans Jóns míns "Tíminn og við" paroles

Tíminn og við

Tíminn tekur einatt af mér völdin.Hér áður fyrr var önnur öldin.Tíminn er konungur vor.Hann virðist alltaf vera að hlaupa.Og ávallt erum við að kaupa tíma,en verðum of sein.

En núna lofa ég að nýta þennan góða dagog bera meira úr býtum,reyna að vera ögn betri maður,ég skal gera vel eins og mögulegt er.

Tíminn er af skammti afar skornum.Og glasið fyllist fljótt af kornum.Dagurinn breytist í nóttfyrr en þú hyggur, það er málið.Það brennur innra með þér bálið,en slokknar með tímanum víst.

Já, núna lofa ég að nýta þennan góða dagog bera meira úr býtum,reyna að vera ögn betri maður,ég skal gera vel eins og mögulegt er.

Hann flýgur fljóttog fyrr en varir flest er breytt.En alltaf er smá tími eftir handa þér.Veistu, mér líður vel um þessar mundirog ætla að eiga með þér stundir.Tíma þeim varið er vel.

En núna ætla ég að nýta þennan fagra dagog bera meira úr býtum.Ég mun gera eins vel og hægt er,reyna að vera betri við þá sem ég ann.

Já, núna lofa ég að nýta þennan góða dagog bera meira úr býtum,reyna að vera betri maður,ég mun gera vel eins og mögulegt er.

Ici on peut trouver les paroles de la chanson Tíminn og við de Sálin hans Jóns míns. Ou les paroles du poème Tíminn og við. Sálin hans Jóns míns Tíminn og við texte. Peut également être connu par son titre Timinn og vio (Salin hans Jons mins) texte.