Við Gengum Tvö
Við gengum tvö, við gengum tvö í rökkurró.Við leiddumst hljóð, við leiddumst hljóð um ungan skóg.Þú varst yndi, þú varst yndi og ástin mín.Og stundin áfeng, stundin áfeng eins og vín.
Við hlýddum tvö, við hlýddum tvö í húmi ein.Er blærinn kvað, er blærinn kvað við blöð á grein.Ég var nóttin, ég var nóttin þögla þín.Og þú varst eina, þú varst eina stjarnan mín.
Á meðan norðurljósin leiftra um bláan himininn.Þá sit ég einn og þrái kveðjukossinn þinn.